July 15 102 Comments
Please note that this post is in Icelandic. There are plently of other posts in English here as well.
—
Grein þessi var skrifuð fyrir vef Félags íslenskra teiknara; teiknarar.is
Í hvert skipti sem ég er geri tilboð í verk er ég nær undantekningalaust beðinn um að lækka verðið eða gefa einhverskonar afslátt.
Það er ekki vegna þess hve mikið ég hef ákveðið að taka á tímann eða vegna þess hve ósanngjarn og gráðugur ég er.
Ég hef unnið sjálfstætt, á einn eða annan hátt, í 10 ár og miðast verðin mín við reynslu mína, færni, yfirbyggingu og aðra mikilvæga þætti. Ég tel að verðin mín séu sanngjörn endurspeglun á hvað ég þarf að hafa til að koma út í nægum plús til að halda uppi rekstrinum, borga reikninga og fæða mig og mína.
Ég er ekki sá dýrasti og ég er heldur ekki sá ódýrasti.