Posts Tagged ‘freelance’

Af hverju að velja sjálfstætt starfandi grafískan hönnuð?

July 15 4 Comments

Please note that this post is in Icelandic. There are plently of other posts in English here as well.

Þegar íslensk fyrirtæki, félagshópar eða einstaklingar þurfa á grafískri hönnun að halda hafa þeir oftast um tvennt að velja. Annarsvegar að hafa samband við auglýsingastofu og hinsvegar að velja sjálfstætt starfandi hönnuð.

Það getur verið misjafnt hvor kosturinn hentar verkefninu eða fyrirtækinu en áður en ákvörðun er tekin er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga.

Fyrsta atriðið sem kemur til umhugsunar er oftar en ekki kostnaður. Það er ekkert launungamál að stundum þurfa fyrirtæki að passa upp á fjárhaginn og ekki síst núna þegar kreppir að. Sjálfstætt starfandi hönnuður er tvímælalaust ódýrari kostur. Þú greiðir aðeins fyrir sérþekkingu og tíma eins hönnuðar en ekki fyrir mikla yfirbyggingu og aðra starfsmenn auglýsingastofunnar. Með því að velja sjálfstætt starfandi grafískan hönnuð geta sparast gríðarlega miklir fjármunir til lengri tíma litið.

(more…)