Posts Tagged ‘grein’

Er kaffið þitt milljón króna virði?

July 15 9 Comments

Please note that this post is in Icelandic. There are plently of other posts in English here as well.

Grein þessi var upprunalega skrifuð fyrir fjármálavefinn Skotsilfur.com

Ert þú ein eða einn af þeim sem stoppar við á kaffihúsínu á morgnana fyrir vinnu og nælir þér í einn sjóðheitan kaffibolla og kannski eitthvað brauðmeti með því?

Ferðu í kaffitímanum og verslar þér eitt Snickers og kannski kókdós með?

Hefurðu einhvertíman stoppað og athugað hvað það er mikill peningur á viku? Á mánuði? Á ári?

(more…)

Ertu maður í að lækka þig?

July 15 102 Comments

Please note that this post is in Icelandic. There are plently of other posts in English here as well.

Grein þessi var skrifuð fyrir vef Félags íslenskra teiknara; teiknarar.is

Í hvert skipti sem ég er geri tilboð í verk er ég nær undantekningalaust beðinn um að lækka verðið eða gefa einhverskonar afslátt.

Það er ekki vegna þess hve mikið ég hef ákveðið að taka á tímann eða vegna þess hve ósanngjarn og gráðugur ég er.

Ég hef unnið sjálfstætt, á einn eða annan hátt, í 10 ár og miðast verðin mín við reynslu mína, færni, yfirbyggingu og aðra mikilvæga þætti. Ég tel að verðin mín séu sanngjörn endurspeglun á hvað ég þarf að hafa til að koma út í nægum plús til að halda uppi rekstrinum, borga reikninga og fæða mig og mína.

Ég er ekki sá dýrasti og ég er heldur ekki sá ódýrasti.

(more…)

Af hverju að velja sjálfstætt starfandi grafískan hönnuð?

July 15 4 Comments

Please note that this post is in Icelandic. There are plently of other posts in English here as well.

Þegar íslensk fyrirtæki, félagshópar eða einstaklingar þurfa á grafískri hönnun að halda hafa þeir oftast um tvennt að velja. Annarsvegar að hafa samband við auglýsingastofu og hinsvegar að velja sjálfstætt starfandi hönnuð.

Það getur verið misjafnt hvor kosturinn hentar verkefninu eða fyrirtækinu en áður en ákvörðun er tekin er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga.

Fyrsta atriðið sem kemur til umhugsunar er oftar en ekki kostnaður. Það er ekkert launungamál að stundum þurfa fyrirtæki að passa upp á fjárhaginn og ekki síst núna þegar kreppir að. Sjálfstætt starfandi hönnuður er tvímælalaust ódýrari kostur. Þú greiðir aðeins fyrir sérþekkingu og tíma eins hönnuðar en ekki fyrir mikla yfirbyggingu og aðra starfsmenn auglýsingastofunnar. Með því að velja sjálfstætt starfandi grafískan hönnuð geta sparast gríðarlega miklir fjármunir til lengri tíma litið.

(more…)