Ragnar Freyr

Graphic Design
& Typography

Reykjavík, Iceland

ragnarfreyr.com
r@ragnarfeyr.com

FÍT

Grafísk hönnun
& typógrafía

Reykjavík, Ísland

Verk

Upplýsingar
Um Ragnar
Meðmæli
Ferli
Samband

Ferlið

Grafísk hönnun er ákveðið ferli og tekur vissulega sinn tíma. Tryggja þarf að allar upplýsingar séu til staðar við upphaf verks og að allir aðilar séu á sömu blaðsíðu svo að ekki komi upp misskilningur í miðju verki. Undirbúningur er lykilatriði að góðu samstarfi og góðu verki.

Hér til hliðar má sjá verkferli Ragnars.

Hafðu endilega samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt hefja samstarf.



Vefsíðuhönnun

Ragnar Freyr hefur einnig útbúið kynningarbækling um nokkra þætti vefsíðuhönnunar.

RagnarFreyr_Vef.pdf 84kb



Þrepin

1. Þú hefur samband með upplýsingar um verk.
2. Ragnar svarar þér um hæl til að fræðast frekar um verkefnið.
3. Umfang, dagsetningar, efni og óskir þínar eru ræddar.
4. Útbúið er einfalt samkomulag um umfang, dagsetningar, efni, óskir, fjölda breytinga og verð sem báðir aðilar samþykkja.
5. Þú sendir allt það efni sem tengist verkinu á Ragnar.
6. Ef samið var um upphafsgreiðslu er hún greidd áður en verk hefst.
7. Verk hefst.
8. Þér eru sendar tillögur.
9. Tillögurnar ræddar og breytingar gerðar eftir samkomulagi.
10. Lokatillögur samþykktar.
11. Ragnar gengur frá verki til prents eða forritunar.
12. Verklok.
13. Ragnar sendir þér reikning fyrir vinnunni.
14. Þú greiðir reikninginn samkvæmt samkomulagi.
15. Allir glaðir og áralangt samstarf hefst.