Stína Ágústsdóttir (Nista | Stina August)
Ragnar Freyr hefur unnið plötuumslag ásamt kynningarefni fyrir mig og tekist sérlega vel til. Samstarfið hefur verið faglegt og skemmtilegt. Hann hefur sýnt mikinn liðleika og klárað verkefni með glimrandi niðurstöðum. Sköpunargleðin er höfð í fyrirrúmi og hugmyndavinna fordómalaus og opin. Hjá Ragnari er allt hægt!Áslaug E. og Garðar S., höfundar Sófaskynslóðarinnar
Við vorum heppin að fá Ragnar til liðs við okkur. Ragnar Freyr er án efa einn metnaðarfyllsti hönnuðurinn um þessar mundir. Hann tók virkan þátt í mótun og vinnslu verkefnisins, leysti það stórglæsilega af hendi og fékk m.a. viðurkenningu Félags íslenskra teiknara fyrir. Við erum honum afar þakklát fyrir frábært samstarf og vonum að á því verði langt og farsælt framhald.Auður Karitas Ásgeirsdóttir, samstarfshópur friðarhreyfinga
Það var einstaklega þægilegt og gott að vinna með Ragnari Frey. Framúrskarandi góð þjónusta. Við erum ólýsanlega þakklát.Landbúnaðarháskóli Íslands
Við eigum Ragnari Frey miklar þakkir að færa fyrir skjót viðbrögð og virkilega flott útlit á skólablaðinu okkar. Öll vinna af hans hálfu var mjög fagleg og samstarfið þægilegt. Við vonumst því eftir að eiga frekara samstarf í framtíðinni.Hr. Örlygur / Mr. Destiny
Það er ekki að ástæðulausu að við höfum haldið áfram að leita til Ragnars með ýmis verkefni okkar. Reynsla okkar af samstarfinu hefur verið mjög góð og greinilegt að fagmennska og sköpunargleði er þar í hávegum höfð. Ragnar Freyr hönnuður á sérstaklega skilið mikið hrós fyrir skil á frábærum úrlausnum á öllum þeim verkefnum sem hann hefur gert fyrir okkur.Ari Tómasson, ritstjórn
Ragnar Freyr er frábær hönnunarstofa. Við hjá Rjóminn.is erum sátt við þjónustuna og sérstaklega erum við stolt af útliti vefsins okkar - Sílspikað lógó og fallegasti vefur á landinu þori ég að fullyrða.Suðsuðvestur, Inga Þórey Jóhannsdóttir og Thelma Björk jóhannesdóttir
Það veitti okkur ómælanlega gleði og hamingju að starfa með Ragnari Frey. Fagmennska í einu og öllu skilaði frábæru verki af hans hálfu og hlakkar okkur til að eiga frekari samstarf við hann í framtíðinni.Leópold Kristjánsson & Karl Tryggvason (Breakbeat.is)
Ragnar has worked for us since April 2003 when he did the motion visuals for one of our bigger nights that year, since then Ragnar has been the main designer of breakbeat.is related material, including posters, flyers & visuals. He has had total creative control due to the fact that his work never disappoints. We have complete trust in his work. He is ambitious, flexible and professional. Working with him is always a pleasure.